site language: icelandic english

Vinningshafar Nordisk Panorama í Malmö 2008

Laugardagurinn 27. september

Vinningshafi SF norrænu hæfileikaverðlaunanna 2008

Vinningshafi SF norrænu hæfileikaverðlaunanna árið 2008 var Lisa Bergstöm (Svíþjóð) fyrir verk sitt The Undertaker Students.

Mat dómnefndar:

„Myndin hefur þann möguleika að snerta alþjóðlega áhorfendur og skemmta þeim á sama tíma. Dómnefndin hefur ákveðið að verðlauna leikstjórann fyrir þetta verkefni sem fjallar um óforboðna bannhelgi með frumlegum, hlýjum en jafnframt gamansömum hætti.“ Lesa meira...

 


 

  Sunnudagurinn 28. september

Vinningshafi Crossover Nordic Pitch 2008

 

Síðustu söluræðurnar á sunnudeginum 28. september, niðurstöðurnar úr Crossover Nordic lab, voru vægast sagt spennandi. Sex mjög áhugaverðar hugmyndir voru kynntar og voru verkefnin öll mjög ólík. Dómnefndin átti í miklum erfiðleikum með að  ákvarða sigurvegarann sem hljóta ætti þróunarverðlaunin sem hljóðuðu upp á 100.000.- sænskar krónur. Þau komust þó að lokum að niðurstöðu og vinningshafarnir voru Maria Ahlin og Andreas Öhman sem voru verðlaunuð fyrir verkefni sitt Our Secret Society. Read all about it

 


Mánudagurinn 29. september

Vinningshafar í stuttmyndamaraþoni Nordisk Panorama

1. verðlaun: Panopticon eftir Sten Rosendahl (Svíþjóð)
2. verðlaun: Agruppen Drama eftir Norrängsskolan Hässleholm (Svíþjóð)
Hér er hægt að horfa á keppnina!

 


 

Þriðjudagurinn 30. september

Besta norræna stuttmyndin

Verðlaunin fyrir bestu norrænu stuttmyndina í ár féllu í skaut danska leikstjórans Martin de Thurahs fyrir mynd sína Young Man Falling (Ung man falder).

Heiðurstilnefningu fékk Johannes Nyholms (Svíþjóð) fyrir mynd sína The Tale Of Little Puppetboy (Sagan om den lille Dockpojken) sem viðurkenningu fyrir listræna sýn leikstjórans. Lesa meira...

Þátttakendur í stuttmyndakeppninni eiga einnig möguleika á að vinna Canal+ verðlaunin sem valin eru af fulltrúa frá Canal+ og samanstanda af því að myndin er keypt til sýningar há þeim. Í ár voru það dönsku leikstjórarnir Lars Wass og Thomas Glud sem hrepptu verðlaunin fyrir mynd sína Out of Spjald (Væk fra Spjald).

Besta norræna heimildamyndin

Verðlaunin fyrir bestu norrænu heimildamyndina fékk norski leikstjórinn Håvard Bustnes fyrir mynd sína Big John (Blod & ære).

Dómnefndin veitti tvær heiðurstilnefningar í þessum flokki og þær fengu sænski leikstjórinn Jonas Odell fyrir mynd sína Lies (Lögner) og finnski leikstjórinn John Websters fyrir mynd sína Recipes for Disaster. Lesa meira...

Þetta árið kepptu heimildamyndir styttri en 30 mínútur einnig um verðlaunin Sparbanksstiftelsen Skåne Award sem hljóðuðu upp á 30.000.- sænskar krónur fyrir bestu stuttu heimildamyndina. Vinningshafinn var norska leikstýran Solveig Melkeraaen en hún hlaut verðlaunin fyrir mynd sína Statistics (Statistikk).

Nýjar norrænar raddir

Annað árið í röð voru verðlaun veitt fyrir efnilegustu norrænu leikstjórana en þetta árið féllu verðlaunin í skaut danska leikstjóranum Nikolaj Viborg fyrir mynd sína 69.

Dómefndin vildi þó sérstaklega viðurkenna leikstjóra tveggja annarra mynda í þessum flokki en það voru hin finnska Annika Grof fyrir mynd sína Alone, Together og hin finnski Antti Laakso fyrir mynd sína The Last Elephant. Lesa meira...