site language: icelandic english

Nordisk Panorama 2009 - Kærar þakkir!

Í sex daga stóð keppni 72 mynda yfir í keppnisdagskrá Nordisk Panorama 2009. Á hátíðinni voru bestu stutt- heimildamyndir Norðurlandanna sýnar og sumar af þeim frumsýndar alþjóðlegum áhorfendum. Á verðlaunaafhendingunni í gærkvöld voru það myndir frá Danmörku og Svíþjóð sem hlutu flest verðlaunin.

Besta norræna stuttmyndin

Verðlaunin fyrir bestu norrænu stuttmyndina fékk okkar eigin Rúnar Rúnarsson fyrir myndina Önnu. Hann keppti reyndar fyrir hönd Danmerkur en við getum verið einstaklega stolt af Rúnari sem er einn færasti ungi leikstjórinn í dag.

Dómnefndin veitti Söru Eliassen frá Noregi sérstaka tilnefningu fyrir mynd sína Still Birds og Patrik Eklund frá Svíðþjóð fyrir mynd sína Seeds of the fall.

Canal+ Verðlaunin

Canal+ verðlaunin voru valin af fulltrúa frá Canal+ og þau hlaut Åsa Johannisson frá Svíþjóð fyrir mynd sína Fish.

Besta norræna heimildamyndin

Verðlaunin fyrir bestu norrænu heimildamyndina fékk Mads Brügger frá Danmörku fyrir mynd sína Red Chapel.

Dómnefndin veitti Christian S. Jepsen frá Danmörku sérstaka tilnefningu fyrir mynd sína Side By Side og Irisi Olsson frá Finlandi fyrir mynd sína Between Dreams.

New Nordic Voices

Í þriðja sinn í ár kepptu efnilegir kvikmyndagerðarmenn um titilinn New Nordic Voices. Í ár hlutu hnossið William Johansson og Lars Edman frá Svíþjóð fyrir mynd sína Toxic Playground.

Dómnefndin veitti Sutharsan Bala frá Noregi sérstaka tilnefningu fyrir mynd sína Strays.

Open Source Styrkur

Að lokum var svo einnig veittur þróunarstyrkur til verkefnis sem hefur möguleika til að vnna  eftir svokallaðri "Open Source" forskrift, en það eru myndir sem gerðar eru úr myndefni sem ekki er háð höfundarrétti, enda komið á framfæri í gegnum netið af fólki sem tekur þátt í verkefninu um "open source" eða "frjálsa heimild" eins og kalla mætti það á íslensku. Styrkinn hlaut finnska verkefnið One Thousand Stories og leikstjórar þess Antti Haase og Jussi Oroza.

 


 

ATHUGIÐ AÐ MIÐASALA ER Í REGNBOGANUM

Ekki gleyma aukasýningunum okkar á eftirfarandi myndum:

Videocracy mánudaginn 28. september klukkan 22:00.

Burma VJ þriðjudaginn 29. september klukkan 22:00.

 


 

Spennandi dagur!

Í dag verður umdeilda heimildamyndin BANANAS!* sýnd klukkan 18:00 og í framhaldi af því verður málþing um lögsóknina gegn kvikmyndagerðarfólkinu og málfrelsi í heimildamyndum.

Fulla dagskrá er að finna þar sem tengillinn hér fyrir neðan leiðir.

Hafið það gott í dag!

MÁNUDAGURINN 28. SEPTEMBER


 

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ NORDISK PANORAMA

Enginn má láta afmælisdagskrána framhjá sér fara en í allan dag eru í sýningu valdar vinningsmyndir síðustu tuttugu ára. Skálað verður í Regnboganum og boðið upp á köku.

Seinna í dag hittast þeir Friðrik Þór og Jim Stark í Norræna húsinu þar sem þeir munu ræða kvikmyndagerð, lífið og tilveruna. Aðgangur að þessu spjalli þeirra er ókeypis og veitingar eru seldar á staðnum. Frábær viðuburður þar sem hægt þessir kvikmyndagerðarmenn sjást í öðru ljósi en venjulega.

Njótið dagsins!

SUNNUDAGURINN 27. SEPTEMBER

 


Takk öll fyrir frábært gærkvöld!

Það fór ekki á milli mála að einn aðalstaður hátíðarinnar verður Íslenski barinn en þar var fullt úr dyrum í gær af skemmtilegu fólki.

Í dag hefst svo kvikmyndafjörið fyrir alvöru en hér fyrir neðan er hægt að fylgja tenglinum sem færir ykkur yfir á dagskrá dagsins.

Njótið vel og við sjáumst fljótt!

LAUGARDAGURINN 26. SEPTEMBER


 

Hægt er að hlaða niður bæklingi hátíðarinnar með því að smella hér.

Þeir sem eiga enn eftir að skrá sig á hátíðina geta fylgt tenglinum hér fyrir neðan.


smellið hér til að skrá ykkur á hátíðina!

Með því að smella á borðann hér fyrir neðan er hægt að bóka hótelherbergi á einum af fimm Center hótelum í Reykjavík á sérstöku Nordisk Panorama verði.

Til að bóka flugmiða til Íslands er hægt að smella a Icelandair borðann hér fyrir neðan.

 

 

 


 

Við kynnum stolt keppnismyndir hátíðarinnar í ár

Nú hafa þær myndir verið valdar sem koma til með að keppa til verðlauna á Nordisk Panorama 2009 í Reykjavík. Af þeim 520 myndum sem sendar voru á hátíðina í ár voru 21 heimildamynd og 40 stuttmyndir valdar í keppni, til viðbótar voru 11 myndir valdar í keppnisflokkinn Nýjar norrænar raddir. Auk þess voru 22 verkefni valin til kynningar á fjármögnunarmessu hátíðarinnar, Nordisk Forum.
 
Á hátíðinni er kappkostað að velja til keppni framúrskarandi myndir og sýna jafnframt þverskurð af þeirri frjóu kvikmyndaframleiðslu sem á sér stað á Norðurlöndunum. Þá miklu ábyrgð að velja myndir í keppni ber sérstök valnefnd skipuð fulltrúum Norðurlandanna. Í ár var valið sérstaklega erfitt þar sem mikill fjöldi gæðamynda var sendur inn.

Smellið hér til að sjá lista yfir heimildamyndir sem keppa munu til verðlauna.

Smellið hér til að sjá lista yfir stuttmyndir sem keppa munu til verðlauna.

Smellið hér til að sjá lista yfir þær myndir sem keppa munu um titilinn Nýjar norrænar raddir.

Smellið hér til að sjá lista yfir þau verkefni sem kynnt verða á fjármögnunarmessunni.

 


 

Skráningu mynda á Nordisk Panorama 2009 er nú lokið!

 


 

Nordisk Panorama snýr aftur til Reykjavíkur í ár og er það mikið gleðiefni að 20. norræna stutt- og heimildamyndahátíðin sé haldin hér á landi en hún verður haldin dagana 25. – 30. September.

Hefð hefur myndast fyrir því að Filmkontakt Nord skipuleggi myndamarkað á hátíðinni en á honum gefst hátíðargestum tækifæri til þess að sjá alla nýjustu titlana. Markaðurinn hefur verið gríðarlegt tækifæri fyrir kvikmyndagerðamenn að sýna myndir sínar fjárfestum, kaupendum og dreifendum. Allar þær myndir sem skráðar eru á markaðinn fara sjálfkrafa í myndasafn og rafrænan grunn Filmkontakt Nord sem er nýttur árið um kring fyrir alþjóðlegar hátíðir og markaði. Þær myndir sem valdar eru til keppni eru sjálfkrafa skráðar á markaðinn en aðrar myndir eru eingöngu á markaðnum ef hakað hefur við þann möguleika í umsóknarferlinu.


Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna hér.