site language: icelandic english

Myndir

Aðalhluti Nordisk Panorama er norræna keppnisdagskráin en þar keppa bestu stutt- og heimildamyndirnar frá fimm norrænu löndunum til verðlauna. í ár verður lokavalið á myndum gert opinbert aðra vikuna í júlí og munu völdu myndirnar keppa í eftirfarandi þremur flokkum:

Norrænar stuttmyndir

Norrænu stuttmyndirnar sem keppa til verðlauna sem besta norræna stuttmyndin geta verið af öllum gerðum, leiknar, teiknaðar eða tilraunakenndar en myndirnar mega þó ekki vera lengri en 60 mínútur.

Norrænar heimildamyndir

Norrænar heimildamyndir, stuttar jafnt sem i fullri lengd, keppa til verðlauna sem bestu norrænu heimildamyndirnar.

Nýjar norrænar raddir

Í Nýjum norrænum röddum er ungum og upprennandi norrænum kvikmyndagerðarmönnum gert hátt undir höfði og þeir efnilegustu hreppa verðlaunin í þessum flokki. Í þessum keppnisflokki er gott að vera undirbúinn undir hvað sem er.

 

Hér er hægt að lesa meira um verðlaunin.

Hér er hægt að lesa meira um valið á myndum.

Hér er hægt að lesa meira um reglur keppninnar.