Komið og fagnið með okkur tuttugustu Nordisk Panorama – 5 borga kvikmyndahátíðinni!
Hátíðin snýr aftur til Reykjavíkur
Stutt- og heimildamyndahátíðin Nordisk Panorama var haldin í Reykjavík í fyrsta sinn árið 1994, aftur árin 1999 og 2004 og í fjórða sinn nú í ár 2009. Í öll skiptin hefur hátíðin tekist afar vel en árið 2004 í Reykjavík var aðsóknarmet hátíðarinnar slegið þegar 7477 manns tóku þátt í hátíðinni með einum eða öðrum hætti. Það met hefur ekki verið slegið síðan. Í ár verður mikið um dýrðir þegar hátíðin fagnar 20 ára afmæli sínu. Nordisk Panorama 2009 er samstarfsverkefni Kvikmyndamiðstöðvarinnar, Reykjavíkurborgar og Filmkontakt Nord auk ýmissa fjárfesta.
Fyrir 20 árum ...
Fyrsta kvikmyndahátíðin undir merkjum Nordisk Panorama var haldin í Noregi árið 1989. Í byrjun var hátíðin eingöngu skipulögð sem aðalsamkomustaður norrænna stutt- og heimildamyndagerðarmanna en mikill áhugi kvikmyndáhugafólks varð til þess að hátíðin var opnuð fyrir alla sem áhuga hafa. Síðan þá hefur hátíðin haft mikil áhrif á kvikmyndagerð norrænna kvikmyndagerðarmanna og kvenna sem og aukið áhuga áhorfenda á norrænni stutt- og heimildamyndagerð..
Hátíðin bíður upp á einstakt tækifæri til þess að taka púlsinn á norrænni kvikmyndgerð og vera fyrstur til að sjá nýjar myndir eftir þekkta leikstjóra og óuppgötvað hæfileikafólk. Fjöldi alþjóðlegra þekktra norrænna leikstjóra hefur þreytt frumraun sína á Nordisk Panorama og er hátíðin mikilvægur stökkpallur fyrir unga kvikmyndagerðarmenn.
Nordisk Panorama flakkar á milli fimm norrænna borga og er skipulögð af Filmkontakt Nord og staðarhaldara hvert ár í Reykjavík, Bergen, Århus, Oulu eða Malmö. Hátíðin sker sig frá öðrum kvikmyndahátíðum vegna þess að hún er sköpuð og skipulögð af samtökum kvikmyndagerðarmanna og kvenna.
... svo mikið meira en kvikmyndahátíð
Markmið hátíðarinnar er að ná til breiðs áhorfendahóps stutt- og heimildamynda og opna augu sem flestra fyrir þessum spennandi kvikmyndaformum. Þessu er ekki eingöngu reynt að ná fram með sýningu kvikmynda en hátíðin er einnig vettvangur umræðna, þróunar og tengslamyndunar fyrir hvort sem er fagfólk eða áhorfendur.
Come and celebrate the 20th Nordisk Panorama - 5 Cities Film Festival
The festival is back in Reykjavik!
Aðalsýningar Nordisk Panorama eru hluti af efnisskrá keppninnar sem fram fer á hátíðinni. Sú dagskrá felur í sér sýningu á um það bil 80 nýjum stutt- og heimildamyndum og er stór hluti þeirra mynda sýndur í fyrsta sinn á hátíðinni alþjóðlegum áhorfendum. Keppt er um þrenn verðlaun, Besta norræna stuttmyndin, Besta norræna heimildamyndin og Nýjar norrænar raddir.
Samsíða hátíðinni eru tveir mikilvægir og spennandi aburðir skipulagðir. Þeir eru Fjármögnunarmessan og Markaðurinn en á þeim gefst einstakt tækifæri fyrir kvikmyndagerðarmenn að kynna nýjar hugmyndir í þróun, dreifa myndum sínum og fjármagna ný verkefni.
Öllum er boðið
Hvort sem þú ert í faginu eða áhugasamur kvikmyndaaðdáandi er öruggt að eitthvað er við þitt hæfi á Nordisk Panorama – 5 borga kvikmyndahátíðinni í Reykjavík 2009.
Fylgist með og fáið reglulega sent fréttabréf hátíðarinnar með því að smella hér!